Gæti skitið á sviðið og unnið Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir í Aþenu skrifar 17. maí 2006 14:59 Silvía Nótt fór upp á hótel eftir þriðju síðustu æfinguna fyrir Eurovision. Hún æfir aftur í kvöld. MYND/Valli "
Æfingin var æðisleg. Hvað sem ég geri er æðislegt. Ég gæti skitið á sviðið og samt unnið keppnina," sagði Silvía á ensku við blaðamann Fréttablaðsins rétt áður en einkabifreið hennar flutti hana burt úr O.A.K.A höllinni í Aþenu fyrr í dag, þar sem Eurovision fer fram: "Þau elska mig." Æfingin gekk ekki sem best, en Silvía Nótt steig á Rómaríó, rann til á sviðinu, púað var á hana af Grikkjum í höllinni og hún missti söngtaktinn þegar hún renndi sér niður rennibrautina, sem er hluti af sviðsmyndinni. Spurð af hverju gekk svona illa, þegar hún yfirgaf höllina stuttu eftir atriðið, svaraði hún á íslensku: "Bíddu, er ekki allt í lagi." Það eru fyrstu íslensku orð hennar í langan tíma. Silvía svaraði ekki þegar hún var spurð hvort hún væri ennþá veik, en Rómaríó sagði að hún hefði hita. Hún gæti því ekki tjáð sig við fjölmiðla. "Fariði, ég á mitt einkalíf," hrópaði Silvía á meðan hún, Rómaríó og Peppe leituðu að bílnum sem flutti þau upp á hótel. Silvía ákvað síðan að gefa álit sitt á æfingunni eins og sjá má. Silvía stígur aftur á svið í kvöld. Genaralprufan verður á morgun og svo stóra stundin annað kvöld. Af frammistöðunni má helst dæma að leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir hafi ekki náð sér frá því í gær. Hún hefur átt betri daga. Fjölmargir fylgdust með Silvíu á skjám úr fjölmiðlaherbergi hallarinnar. Menn brostu út í annað og hvöttu hana áfram. Hún hefur ekki misst athyglina eða hörðustu aðdáendurna hér í Aþenu, þrátt fyrir skilningsleysi Grikkjanna á persónu hennar. Spennan magnast í höllinni í Aþenu. Hingað til fumlaus atriði keppinauta Silvíu fengu á sig hnökra á æfingunni. Rússinn Dima Bilan, sem spáð er góðu gengi, fór í fyrsta sinn út af lagi. Söngkonan Sandra Oxenryd, sú sænska sem keppir fyrir Eistland, átti slæman dag og var einnig fölsk. Ofurstjarnan sænska Carola hefur oft verið betri. Aðeins Hari Mata Hari frá Bosníu, sem syngur á undan Silvíu, gerði enn betur en hingað til.
Innlent Lífið Menning Mest lesið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Sjá meira