Sport

Skagamenn enn án stiga

Guðmundur Benediktsson lék mjög vel í liði Vals í kvöld, en liðið hefði þó átt að skora miklu fleiri mörk
Guðmundur Benediktsson lék mjög vel í liði Vals í kvöld, en liðið hefði þó átt að skora miklu fleiri mörk Mynd/Hörður

Valsmenn unnu í kvöld góðan 2-1 sigur á Skagamönnum á Laugardalsvelli í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og eru skagamenn því enn án stiga eftir fjórum umferðum er lokið. Igor Pesic kom ÍA yfir fyrir hlé, en þeir Sigurbjörn Hreiðarsson og Garðar Gunnlaugsson tryggðu sprækum Valsmönnum sigurinn með sitt hvoru markinu í síðari hálfleik.

Valsmenn voru mun sprækari í leiknum og fengu fjölda góðra tækifæra til að skora, en mörkin tvö nægðu liðinu í kvöld. Það var þó ekki eintóm gleði í herbúðum Valsmanna í kvöld, því Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði liðsins kinnbeinsbrotnaði í miklu samstuði og verður því ekki með liðinu á næstunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×