Innlent

Þurfa líklega að brenna matvæli frá herstöð

MYND/Teitur

Líkur eru á að varnarliðinu verði gert að brenna tugi tonna af fyrsta flokks matvælum, sem nú eru í stórmörkuðum og frystigeymslum á Keflavíkurflugvelli, í stað þess að fá að gefa þau íslenskum sjálfseignarstofnunum sem vinna að líknarmálum.

Talað er um að matvælabrennan mikla verði í sorpeyðingarstöðinni í Helguvík undir eftirliti íslenskra lögreglumanna, svo ekki sleppi kjötflís í munn hungraðs Íslendings. Stórmarkaðnum Navy Exchange, sem líkja má við Hagkaup í Kringlunni, verður lokað eftir þrjár vikur en fullu vöruframboði verður haldið þangað til.

Þar er mikið af niðursuðuvörum og frystum vörum í hæsta gæðaflokki að kröfum atvinnuhermanna og frystar nautalundir, kalkúnar og annað kjötmeti er í tuga tonna birgðum í svonefndri Coldstore, sem sér mötuneytum og klúbbum fyrir vistum.

Að sögn kunnugra er þetta gríðarlegt magn og mikil verðmæti, en talsmenn varnarliðsins fengust ekki í morgun til að tjá sig um málið. Neitun um að fá að gefa matvælin mun þó vera komin úr landbúnaðarráðuneytinu, en ekki náðist í yfirdýralækni, sem því tilheyrir, núna fyrir hádegið vegna fundahalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×