Innlent

Segir fullum sáttum náð í deilu innan Framsóknar

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við NFS að þeir Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, hafi náð fullum sáttum á fundi þeirra í gærkvöld; handtakið sem sjá má á forsíðu Morgunblaðsins hafi verið traust.

Deilurnar séu að baki og nú einhendi sér flokkurinn í nafni einingar og samstöðu í það verkefni að afgreiða ráðherraskiptin í ríkisstjórninni. Samkomulag hans og Halldórs feli ekki í sér afsögn hvorki varaformanns né annarra í forystu flokksins. Halldór gegni sjálfur formennsku þar til flokksþing verði haldið í þriðju viku ágústmánuðar. Halldór hefur lýst því yfir að hann hyggist hætta í pólitík í haust. Geir H. Haarde verður næsti forsætisráðherra en Guðni segir að stólaskipti að öðru leyti séu ófrágengin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×