Innlent

Orkuveitan verður ekki seld

MYND/Róbert

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ítrekaði það á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fyrirtækið yrði ekki selt. Alfreð Þorsteinsson, sem lét af störfum sem stjórnarformaður Orkuveitunnar eftir 12 ára starf, segir hins vegar að góð staða fyrirtækisins gefi borginni færi á að selja hlut sinn í Landsvirkjun.

Stjórnarskipti urðu á fundinum í dag í samræmi við úrslit borgarstjórnarkosninganna og tekur Guðlaugur Þór Þórðarsson við formennsku í stjórninni af Alfreð Þorsteinssyni. Á aðalfundinum var farið yfir ársskýrslu fyrirtækisins en hún leiðir meðal annars í ljós að hagnaður fyrirtækisins var rúmir 4,3 milljarðar króna á síðasta ári sem er tæplega 700 milljónum króna meira en árið á undan. Þá nema eignir Orkuveitunnar nú rúmum 88 milljörðum króna.

Meðal gesta á fundinum var Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Hann segir að Orkuveitan hafi safnað skuldum að undanförnu, bæði vegna virkjanaframkvæmda og verkefna sem sjálfstæðismenn hafi verið mótfallnir. Sú andstaða sé enn til staðar. Hann hafi enn fremur sagt það á fundinum að meirihlutinn myndi ekki selja Orkuveituna.

Alfreð Þorseinsson lætur nú af embætti sem stjórnarformaður Orkuveitunnar. Hann hefur stýrt veitufyrirtækjum Reykjavíkur síðastliðin tólf ár en á árunum 1999 og 2000 sameinuðust þau og síðan þá hefur veltan ríflega tvöfaldast. Hann telur sig skila góðu búi.

Alfreð bendir á að Orkuveitan sé orðið það sterkt fyrirtæki að engin þörf sé fyrir Reykjavíkurborg að eiga í tveimur stórum orkufyrirtækjum. Nú geti borgin, stærsti eigandinn að Orkuveitiunni, með góðri samvisku selt hlut sinn í Landsvirkjun. Fyrir þann hlut fái borgin væntanlega um 30 milljarða króna sem sé afskaplega mikill búhnykur fyrir hvaða sveitarfélag sem er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×