Innlent

Guðni enn óákveðinn um formannsframboð

MYND/Vísir

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hefur ekki enn ákveðið hvort hann ætlar að sækjast eftir formannsstöðu í flokknum. Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknar, sem styður Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, til formennsku íhugar að gefa kost á sér til varaformennsku, og virðist því ekki reikna með Guðna í æðstu stöður flokksins.

Guðni, sem þessa stundina er á leiðina á Landsmót hestamanna í Skagafirði, sagði í viðtali við fréttastofu fyrir hádegi að hann hafi ekki enn tekið ákvörðun. Mikð væru þót ýtt á sig úr ýmsum áttum og fylkingar væru byrjaðar að skipast, en hann ætlaði að hugleiða málið nánar. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×