Yukos úrskurðað gjaldþrota 1. ágúst 2006 22:28 Stofnandi Yukos, Mikhail Khodorkovsky, var á síðasta ári dæmdur í níu ára fangelsi fyrir þjófnað, skattsvik og fjárdrátt. Málareksturinn gegn honum hafði þá staðið í um tvö ár. MYND/Reuters
Rússneska olíufélagið Yukos hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Félagið var stærsti olíuframleiðandi í Rússlandi þar til stofnandi Yukos var ákærður fyrir ýmis fjársvik fyrir þremur árum. Það var dómstóll í Moskvu, höfuðborg Rússlands, sem úrskurðaði Yukos gjaldþrota í dag. Niðurstaðan þykir ekki koma á óvart eftir það sem á undan er gengið. Stofnandi Yukos, Mikhail Khodorkovsky, var á síðasta ári dæmdur í níu ára fangelsi fyrir þjófnað, skattsvik og fjárdrátt. Málareksturinn gegn honum hafði þá staðið í um tvö ár og sjálf réttarhöldin í tæpt ár. Margir segja stjórnvöld í Rússlandi hafa hannað atburðarásina til að losna við pólitískan andstæðing fyrir forsetakosningarnar þar í landi árið 2008 en Khodorkovsky var upprennandi stjórnmálamaður og hatrammur andstæðingur Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þá er talið að ásókn ríkisins í auðlindir Yukos hafi einnig spilað þarna inn í. Í framhaldi af dóminum yfir Khodorkovsky neyddust eigendur Yukos til að selja stærstan hluta eigna sinna á niðursettu verði til að reyna að standa skil á kröfum og ógreiddum sköttum. Kaupandinn var olíufélagið Rosneft sem er einmitt í eigu rússneska ríkisins. Eftir gjaldþrotsúrskurðinn í dag sagði lögmaður Yukos að nú hefði endanlega verið gengið af fyrirtækinu dauðu.
Erlent Fréttir Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira