Sport

Skagamenn komnir í 2-0

Bjarni Guðjónsson skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu
Bjarni Guðjónsson skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu
Skagamenn eru komnir í 2-0 gegn Fylki í Árbænum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Bjarni Eggerts Guðjónsson skoraði annað mark Skagamanna beint úr aukaspyrnu á 32. mínútu með einstaklega glæsilegum hætti og kemur gestunum í góða stöðu. Áður hafði Guðjón Sveinsson komið Skagamönnum í 1-0. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×