Reykjavík, Sprengjuhöllin og Dóri DNA 24. ágúst 2006 18:00 Hljómsveitirnar Reykjavík! og Sprengjuhöllin ásamt rapparanum Dóra DNA munu troða upp á Stúdentakjallaranum við Hringbraut föstudaginn næstkomandi, 25. ágúst.
Hljómsveitirnar Reykjavík! og Sprengjuhöllin ásamt rapparanum Dóra DNA munu troða upp á Stúdentakjallaranum við Hringbraut föstudaginn næstkomandi, 25. ágúst. Búast má við athyglisverðri stemningu enda er um að ræða ólíka flytjendur. Þannig spilar Reykjavík! hratt og oft og tíðum reitt indí-rokk, Sprengjuhöllin einhverskonar tilraun til ljóðrænnar sönglagarokktónlistar auk þess sem Dóri DNA, sem eins og aðrir skandínavískir hip-hop tónlistarmenn saug bófarapp með móðurmjólkinni, er sífellt að feta sig lengra og lengra inn á brautir R&B-ismans. Húsið opnar klukkan 21 en tónleikarnir hefjast síðar. Þar sem húsrúm er takmarkað er fólki bent á að mæta tímanlega. Sérstök athygli er vakin á því að ókeypis er inn á tónleikana. Ný plata Reykjavíkur!, "Glacial landscapes, religion, oppression and alcohol", hefur hlotið góðar viðtökur og hafa lögin "7.9.13", "Blame it on Gray" og "All Those Beautiful Boys" fengið mikla spilun á útvarpsstöðvum undanfarið en síðastnefnda lagið léku þeir einmitt fyrir framan 30 þúsund manns á Gay Pride hátíðinni við mikinn fögnuð áhorfenda. Sveitin hefur hlotið mikið lof fyrir sviðsframkomu sína en Bóas söngvari sveitarinnar brennir að meðaltali átta þúsund kalóríum á hverjum tónleikum, og til að vinna upp tapið hefur hann yfirleitt drukkið hálfan lítra af majónesi sé uppklapp áhorfenda nægt og gott. Sprengjuhöllin er ný hljómsveit úr austurbæ Reykjavíkur sem getið hefur sér góðs orðs á tónleikum í sumar fyrir líflega sviðsframkomu og kröftug melódísk lög. Nafn hljómsveitarinnar er stílfæring á orðinu "stjörnuhöllin" sem kemur fyrir í ljóðinu "Útsær" eftir Einar Benediktsson, sem er flóknasta og víðfeðmasta ljóð sem samið hefur verið þó að það komi þessu máli ekkert við. Á efnislista Sprengjuhallarinnar er fjölbreytt efni og eru textarnir flestir á íslensku og fjalla um tilvistarþrengingar ungs fólks á spaugilegan hátt. Tónlistarlega eru lögin allt frá því að vera rólegar ballöður sem láta öllum líða vel, yfir í óstöðuga háværa ómstríðu sem lætur yfirleitt einum til tveimur gestum líða illa en flestum öðrum vel. Rapparann Dóra DNA er óþarft að kynna enda hefur hann verið meðal fremstu hip-hop tónlistarmanna landsins síðustu fimm ár, bæði sem liðsmaður hljómsveitarinnar Bæjarins bestu og einnig einn síns liðs en þannig hefur hann m.a. tvisvar sigrað árlega battl-keppni rappara. Dóri leitar nú sífellt meiri áhrifa frá amerískri þægindamenningu á kostnað þeirrar skandinavísku raunhyggju sem var nánast búinn að eyðileggja íslenska rappheiminn fyrir nokkrum árum. Yrkisefni Dóra, sem er afar góður R&B söngvari, eru nú auk ástar, haturs og örvæntingar, amerískir bílar, skyndibitamatur og hægindastólar.
Lífið Menning Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira