Slapp lifandi undan lest 27. ágúst 2006 19:11
Það þykir ganga kraftaverki næst að 26 ára gamall heimilislaus Íslendingur hafi sloppið lifandi þegar honum var hrint fyrir lest á Nörreport-stöðinni í Kaupmannahöfn í gær.Það varð honum til happs að hann lenti milli brautarteina þannig að lestin keyrði ekki beint yfir hann. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús, en hann hlaut skurð á höfði auk nokkurra skráma. Hann dvaldi á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn í nótt og var útskrifaður um hádegisbilið í dag. Maðurinn segir annan heimilislausan mann hafa hrint sér fyrir lestina. Manninum var ýtt fyrir lestina rétt áður en lest kom aðvífandi og síðan lagði sá sem ýtti honum fram af á flótt í leigubíl. Íslendingurinn segist þekkja hann að öllum líkindum af götunni en veit ekki hvað hann heitir né hvað olli því að hann ýtti honum fyrir lestina. Lögreglan segir manninn hafa verið einstaklega heppinn að sleppa lifandi frá þessu en það hafi orðið honum til lífs að hann lenti milli teina. Árásarmannsins er nú leitað en hann er sagður á fertugsaldri, 180 til 185 cm á hæð og klæddur í dökka hettupeysu. Svipaður atburður átti sér stað í júlí á þessari sömu lestarstöð við Nørreport í Kaupmannahöfn, þegar tveir menn hrintu manni niður á járnbrautarteinanna og vörnuðu honum uppgöngu á lestarpallinn með því að sparka í andlit hans. Lestarstjóranum tókst að stöðva lestina í tíma, auk þess sem vegfarendur náðu að hjálpa manninum upp á lestarpallinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira