Sport

Staðan versnar fyrir ÍA

Enn er allt í járnum í botnbaráttu Landsbankadeildarinnar.
Enn er allt í járnum í botnbaráttu Landsbankadeildarinnar.

ÍA er ennþá í 9. sæti Landsbankadeildar karla eftir að hafa misst unnin leik gegn Breiðablik niður í jafntefli í síðari hálfleik í dag. Atli Guðnason er búinn að koma FH í 1-0 í Eyjum þegar rúmur hálftími er eftir.

Það var Nenan Zimanovic sem jafnaði leikinn fyrir Breiðablik og tryggði liði sínu þar með dýrmætt stig sem heldur liðinu í burtu frá fallsæti. Liðið er nú í 7. sæti með 19 stig.

"Við erum ekki klárir í heilan leik greinilega, gefum tvö mörk á klaufalegan hátt. Ég veit ekki af hverju þetta gerist, við virðumst reyna að halda hreinum hlut ósjálfrátt með ekki betri árangri," sagði Bjarki Gunnlaugsson, annar þjálfari Skagamanna, í viðtali við Sýn eftir leikinn.

Hann segir ÍA vera komið í vonda stöðu í deildinni þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. "Við erum núna í þeirri stöðu að við þurfum að treysta á önnur lið, það er aldrei gott. En ég held að allir sjái að við erum að spila vel og eigum ekkert endilega skilið að falla," bætti hann við.

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika, sagði jafntefli hafa verið sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins. "Og ég er sannfærður um að ef við höldum áfram á þeirri braut sem við erum á þá eigum við að halda okkur uppi," bætti hann við.

Í Keflavík skildu heimamenn og Fylkismenn jafnir, 1-1. Mörkin skoruðu Guðjón Antoníuson og Ragnar Sigurðsson. Í Víkinni sigraði KR heimamenn í Víking 1-0 en það var Skúlu Jón Friðgeirsson sem skoraði sigurmarkið í lok leiks. Víkingur og KR markalaust jafntefli. Fylkir og Víkingur eru bæði með 20 stig í 5.-6. sæti deildarinnar og eru enn í fallhættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×