Sport

Góður dagur hjá Íslendingunum

Jóhannes Karl Guðjónsson er úti í kuldanum hjá AZ Aalkmar.
Jóhannes Karl Guðjónsson er úti í kuldanum hjá AZ Aalkmar. Getty Images

Fjölmargir leikir fóru fram í norsku og hollensku úrvalsdeildunum í fótbolta í kvöld. Öll Íslendingaliðin unnu góða sigra í sínum leikjum.

Marel Baldvinsson lék sinn fyrsta leik með Molde þegar það sigraði Viking 3-1. Marel var í byrjunarliðinu en var skipt útaf þegar rúmur hálftími var eftir. Árni Gautur Arason spilaði allan leikinn í marki Valeranga þegar það bar sigurorð af Fredrikstad 5-1 og þá sigraði Lyn, með þá Stefán Gíslason og Indriða Sigurðsson innanborðs, Tromsö á útivelli, 2-1.

Grétar Rafn Steinsson kom inn á sem varamaður í hálfleik þegar lið hans AZ Alkmaar sigraði Nijmegen í Hollandi. Jóhannes Karl Guðjónsson spilaði ekki fyrir AZ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×