Bráðabirgðastjórnin sögð hafa haldið velli 11. september 2006 08:45
Milo Djukanovic, forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn Svartfjallalands, lýsti í gærkvöldi yfir sigri í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, þeim fyrstu frá því landið hlaut sjálfstæði fyrr í sumar. Það voru 55,5% kjósenda sem samþykktu aðskilnað Svartfjallalands frá Serbíu í þjóðaratkvæðagreiðslu í maí. Ríkjasambandinu var síðan formlega slitið í byrjun júní og nokkrum dögum síðar lýstu Serbar yfir sjálfstæði, síðast þeirra lýðvelda sem Júgóslavía samanstóð af. Í lok júní samþykkti svo allherjarþing Sameinuðu þjóðanna að veita Svartfjallalandi aðild að Sameinuðu þjóðunum. Síðan þá hefur bráðabirgðastjórn stýrt landinu en í gær fengu Svartfellingar í fyrsta sinn að kjósa sér þing. Fyrsta verkefni þeirra sem þar munu sitja verður að semja og síðan samþykkja stjórnarskrá þessa nýja ríkis. Leiðtogar þeirra flokka sem leiða bráðabirgðastjórnina hafa heiti kjósendum því að leiða landið hratt og örugglega inn í Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið fái þeir umboð til þess. Leiðtogi sambandssinna, sem eru nú í stjórnarandstöðu, segist hins vegar ætla að vinna náið með Serbum þegar kemur að inngöngu í ESB og NATO. Djucanovic segir flokk sinn hafa fengið hreinan meirihluta í kosningunum. Endanleg úrslit hafa ekki verið kynnt en því er spáð að flokkur Djucanovic hafi fengið nauman meirihluta, það er 41 þingsæti af 81. 70% kosningabærra Svartfellinga greiddu atkvæði en þeir eru 485 þúsund.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira