Týndi lífi í BASE-stökki 16. september 2006 14:00
Yfirvöld í Mexíkó hafa fundið lík þekkst ástralsks ævintýramanns sem týndi lífi í svokölluðu BASE-stökki í suðurhluta landsins fyrr í vikunni. Keppni var þar haldin í þessari glæfralegu íþrótt og verður nú rannsakað hvað fór úrskeiðis. Adam Gibson var 29 ára og frá Sidney í Ástralíu. Han mun hafa verið vanur svokölluðu BASE stökki og nokkuð þekktur fyrir þátttöku í þessari glæfralegu íþrótt. BASE stökk er þegar fallhlíf er notuð án þess að fallhlífastökkvari kasti sér út úr flugvél eins og venja er. Stokkið er af háum brúm, skýjakljúfum eða fjallshlíð. Gibson var að taka þátt í BASE-stökks keppni í Sumidero-gili í Chiapas-héraði í Mexíkó á miðvikudaginn. Hér má sjá þar sem hann og ung kona stökkva ofan í gilið þar sem áttahundruð metrar eru til jarðar. Gibson féll til jarðar án þess að fallhlíf hans opnaðist. Skipuleggjendur keppninnar segja upptökur verða grandskoðaðar og reynt að finna út hvað olli slysinu. Yfirvöld segja að vindasamt hafi verið á svæðinu og það komið í veg fyrir að fallhlífin opnaðist. Gibson hafi síðan skollið á klettavegg og líklegast látist samstundis. Lík Gibsons fannst svo þegar tæpir tveir sólahringar voru liðnir frá slysinu en erfiðlega gekk að komast að því og ná upp úr gilinu. Yfirvöld í Chiapas-héraði höfðu veitt leyfi fyrir keppninni og flykktust keppendur þangað frá Ástralíu, Bandaríkjunum og Evrópu.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira