Reinfeldt fær stjórnarmyndunarumboð 19. september 2006 23:00 Fredrik Reinfeldt, formaður Hægriflokksins (tv), á fundi með Birni von Sydow, þingforseta, í Stokkhólmi í dag. MYND/AP
Fredrik Reinfeldt, sigurvegara sænsku þingkosninganna, hefur verið falið að mynda ríkisstjórn fjögurra hægri flokka í Svíþjóð. Hann fór á fund Björns von Sydow, þingforseta, í dag. Þetta verður fyrsta meirihlutastjórn í Svíþjóð í rúma tvo áratugi. Reinfeld segir sig og þingforsetann koma að þessari vinnu. Hann sagði verkið að öllum líkindum ekki tafsamt og fremur einfalt. Hægriflokkarnir hefðu fengið óskorað umboð til að mynda stjórn. Maud Olofsson, leiðtogi Miðflokksins - eins fjögurra flokka Hægrabandalagsins, segir mikilvægt að tryggja það að kynjahlutföllin í ríkisstjórninni verði jöfn. Konur verði að sitja í helmingi ráðuneyta. Aðspurð um viðhorf Reinfeldts til þessa sagði Maud að þau hefðu ekki rætt þetta mál en hún vonaði að hann áttaði sig á nauðsyn þess að skipa málum með þessum hætti. Ríkisstjórnin komi fram fyrir hönd allra Svía og tali máli þeirra og eins og allir viti sé helmingur Svía konur. Reinfeldt segir hægt að endurspegla samsetningu sænsks þjóðfélags með ýmsum hætti, líta þurfi til reynslu og þeirra sem hæfastir séu. Göran Hägglund, leiðtogi Kristilegra demókrata, segir mikilvægt að skipað verði í stjórn með jöfnum hætti að stefnt sé að jafnrétti en það þurfi að útfæra síðar í stjórnarmyndunarferlinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira