Carl Bildt utanríkisráðherra 6. október 2006 12:30 Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar (tv.), og Björn Von Sydow, þingforseti. MYND/AP
Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. Þingið samþykkti skipan Reinfeldts í embætti forsætisráðherra í gær með 175 atkvæðum gegn 169. Bandalag fjögurra mið- og hægriflokka, undir forystu Reinfeldst, formanns Hægriflokksins, vann sigur í þingkosningum í síðasta mánuði. Reinfeldt, sem er 41 árs, er yngsti forsætisráðherra Svía síðan 1926. Hann sagði það undarlegt að hafa náð þessu takmarki og tekið við. Þetta væri mikill heiður en um leið fylgdi mikil ábyrgð. Reinfeldt tekur við af Göran Persson, leiðtoga Jafnarmanna, en flokkur hans galt afhroð í kosningunum. Persson hefur gent embættinu í áratug. Hann óskaði Reinfeldt til hamingju með nýja starfið og óskaði honum velfarnaðar. Það var svo í morgun sem nýji forsætisráðherrann kynnti nýja ríkisstjórn. Ráðherrar eru 22, þar af 10 konur. Mesta athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi leiðtogi Hægriflokksins og forsætisráðherra á árunum 1991 til 1994, verður utanríkisráðherra. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu sinni á þingi í morgun sagði Reinfeldt að borgaralegu flokkarnir hefðu fengið umboð frá kjósendum til að breyta Svíþjóð. Hann sagði að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og niðurskurð í velferðarkerfinu. Stefnt verði að því að skila tekjuafgangi í fjárlögum.
Erlent Fréttir Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira