Reinfeldt forsætisráðherra, Bildt utanríkisráðherra 6. október 2006 19:15
Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. Skipan Reinfeldts var samþykkt með 174 atkvæðum gegn 169. Reinfeldt er 41 árs og yngsti forsætisráðherra Svía í 80 ár. Bandalag mið og hægriflokka undir forystu hans van stórsigur í þingkosningum í síðasta mánuði. Hann tekur við af Göran Persson, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, sem hefur gengt embættinu í áratug. Flokkur hans galt afhroð í kosningunum. Reinfeldt sagði þetta mikinn heiður sem fylgdi töluverð ábyrgð. Það var svo í morgun sem Reinfeldt kynnti ríkisstjórn sína. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Mesta athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi leiðtogi Hægriflokksins og forsætisráðherra á árunum 1991 til 1994, verður utanríkisráðherra. Það kom nokkuð á óvart að Bildt yrði fyrir valinu þar sem hann sagði fyrir kosningarnar að erfitt yrði að hafa gamlan forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn. Bildt, sem er 57 ára, segir þetta áhugavert verkefni og telur að ný ríkisstjórn standi traustum fótum. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu sinni á þingi í morgun sagði Reinfeldt að borgaralegu flokkarnir hefðu fengið umboð frá kjósendum til að breyta Svíþjóð. Hann sagði að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og niðurskurð í velferðarkerfinu. Stefnt verði að því að skila tekjuafgangi í fjárlögum.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira