Yoko Ono boðar heimsfrið í Höfða 9. október 2006 10:30 "
Það var engin tilviljun sem réði því að við fæddumst á þessum tíma, heldur var okkur ætlað ákveðið verkefni. Og því verkefni er ekki enn lokið. Ég veit að John verður með okkur í anda þennan dag, 9.október, í Reykjavík og ég hlakka til að sjá ykkur og samgleðjast með ykkur á þessum spennandi degi. STRÍÐINU ER LOKIÐ, sé það þinn vilji. Ég elska ykkur." - yoko ono Hin heimskunna myndlistarkona, tónlistarkona og friðarsinni Yoko Ono tilkynnti í byrjun september að hún hyggðist standa fyrir tveimur mikilvægum athöfnum á Íslandi 9. október nk. með það að markmiði að boða heimsfrið. Þennan dag, sem er fæðingardagur eiginmanns hennar John heitins Lennon, mun hún afhenda styrki úr "LennonOno Grant For Peace" friðarsjóðnum og staðfesta áform sín um "IMAGINE PEACE Tower", friðarsúluna í Viðey. Friðarstyrkurinn "LennonOno Grant For Peace" verður afhentur við einkaathöfn í samvinnu við Reykjavíkurborg í Höfða í Reykjavík. Afhentir verða tveir styrkir að verðmæti 50 þúsund dalir hvor, annars vegar til alþjóða heilbrigðis- og mannúðarsamtakanna Médecins Sans Frontiéres/Doctors Without Borders (MFS), eða Læknar án landamæra, og hinsvegar til góðgerðarsamtakanna Center for Constitutional Rights, sem berjast fyrir stjórnarskrárvörðum rétti fólks um heim allan til friðs, sannleika og mannréttinda. Yoko Ono rökstyður styrkveitinguna á eftirfarandi hátt: "Þessi tvö samtök horfa lengra en til átaka og gereyðingar samtímans og eygja bjarta framtíð fyrir samfélag okkar, með óeigingjarnri og óþreytandi baráttu sinni fyrir friðsamlegra umhverfi fyrir plánetu okkar. Þau eru verðugir fulltrúar hinna fjölmörgu samtaka sem miða að sama marki um þessar mundir. Þau þurfa og eiga skilið allan okkar stuðning og virðingu." Friðarsúlan IMAGINE PEACE verður reist í Reykjavík, en hugmyndina að henni fékk Ono fyrst fyrir meira en 40 árum síðan. Fyrir tilstuðlan samvinnu listakonunnar og Listasafns Reykjavíkur, Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur verður staðsetningin fyrir friðarsúluna nú helguð í Viðey. Botn IMAGINE PEACE friðarsúlunnar verður fylltur með bænum og óskum fólks frá öllum þjóðum heimsins en súlunni er ætlað að tákna vonargeisla fyrir þá sem dreymir um heimsfrið. Médecins Sans Frontières/Doctors Without Borders (MSF) - Læknar án landamæra MSF eru sjálfstætt starfandi alþjóða heilbrigðis- og mannúðarsamtök sem veitir neyðaraðstoð til fórnarlamba stríðsátaka, faraldurs eða hamfara af náttúrunnar eða manna völdum. MSF hafa veitt aðstoð í yfir 70 löndum, allt frá Guatemala til Zimbabwe. Center For Constitutional Rights - Miðstöð fyrir stjórnarskrárvarinn rétt The Center for Constitutional Rights hafa gegnt lykilhlutverki í mörgum af umtöluðustu málaferlum síðari ára sem snúið hafa að verndun mannréttinda. Meginvopn CCR er að beita lagabókstafnum sem jákvæðu afli í baráttunni fyrir þjóðfélagsbreytingum. CCR eru meðal annars kunn fyrir sigurinn í hinum umdeildu Guantánamo réttarhöldum 2004 og beita samtökin sér áfram í málaferlum sem snúa að alþjóðlegum mannréttindum, kynþáttajafnrétti, félagslegu réttlæti, borgararéttindum, misbeitingu valds og almennra mannréttinda í kjölfar 11. September. LennonOno Grant For Peace - sjóðurinn LennonOno Grant For Peace-sjóðurinn var stofnsettur fyrir fjórum árum síðan með það að markmiði að boða frið, sannleika og mannúð í heiminum og aðstoða þá sem boða þessi gildi við að halda starfi sínu áfram. Í ár hefur Frú Ono ákveðið að breyta um stað fyrir styrkveitinguna. Hingað til hefur styrkveitingin alltaf farið fram í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York, en eftir að hafa uppgötvað einstaka fegurð þessa norræna lands ákvað Ono að athöfnin færi fram í Reykjavík. Þeir sem áður hafa hlotið styrkinn eru; ísraelski listamaðurinn Zvi Goldstein, palestínski listamaðurinn Khalil Rabah, ísraelskur kjarnorkueftir litsmaður Mordechai Vanunu og hinn kunni bandaríski rannsóknarblaðamaður Seymour Hersh. Frú Ono leggur áherslu á að hvort sem styrkþegar framtíðarinnar verði friðarsinnar, listamenn eða aðrir sem eru styrksins verðugir þá muni gildi LennonOno Grant For Peace -sjóðsins ávallt haldast óbreytt; að lækna sár, manngæska og barátta fyrir friðsamari heimi.
Lífið Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira