Zozo 11. október 2006 15:00
Sænska kvikmyndin Zozo hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006.Josef Fares handritshöfundur og leikstjóri og Anna Anthony framleiðandi Zozo skipta verðlaununum á milli sín. Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350.000 dönskum krónum (um 4 milljónum íslenskra króna)og verða afhent við hátíðlega athöfn í tengslum við árlegt Norðurlandaráðsþing í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 1. nóvember. Tilkynnt var um handhafa Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs á fréttamannafundi í Sænsku kvikmyndastofnunni í Stokkhólmi miðvikudaginn 11. október. Zozo var ein af 10 norrænum kvikmyndum frá Norðurlöndunum 5 sem tilnefnd var til verðlaunanna. Dómnefndin rökstyður ákvörðun sína á eftirfarandi hátt: „Zozo er grípandi kvikmynd um þær aðferðir sem barn notar til þess að takast á við stríð, sorg og framandi menningu". Kvikmyndin notfærir sér margvísleg tjáningarform og tengir sterka raunsæisfrásögn við ljóðræna myndræna tjáningu, ímyndunarafl og húmor. Hún er aðgengileg og næm innsýn í raunveruleg átök og með því að notfæra sér skapandi kraft frá mismunandi kvikmyndamenningu leggur hún sitt af mörkum til endurnýjunar á sterkri hefð norrænna kvikmynda sem fjalla um uppvaxtarárin." Aðalpersónan Zozo elst upp í Beirút. Þrátt fyrir átök í landinu lifir hann venjulegu lífi í skóla og með vinum sínum. Dag einn gerast skelfilegir hlutir og hann verður viðskila við fjölskyldu sína; hann verður því að halda lífinu áfram á eigin spýtur. Eina lausnin er að reyna að komast til Svíþjóðar - lands sem er honum algerlega framandi. Zozo kemur í kjölfar grínmyndanna Jalla! Jalla! Og Kopps, sem nutu mikilla vinsælda. Sagan er mun dramatískari og tilfinningaþrungnari en engu að síður sögð með hinni manneskjulegu kímnigáfu og sjónræna stíl sem einkennir Josef Fares. Handrit og leikstjórn: Josef FaresJosef Fares fæddist í Líbanon árið 1977. Tíu árum seinna flutti hann og fjölskylda hans til Svíþjóðar, nánar tiltekið Örebro. Þar hóf Josef, 15 ára gamall, að gera eigin kvikmyndir og senda þær á kvikmyndahátíðir fyrir áhugamenn. Eftir rúmlega 50 stuttmyndir og fjölmörg verðlaun, komst hann inn í leikstjórnarnám í Leiklistarstofnuninni.(Dramatiska Institutets regiutbildning). Samstarfið við Memfis hófst með myndinni Svalir strákar (Coola killar) og síðan fylgdi Jalla! Jalla! Sem varð vinsæl bæði hjá almenningi og gagnrýnendum. Báðar kvikmyndirnar voru einnig seldar til um 20 landa. Framleiðandi: Anna Anthony Fæddist árið 1971. Fyrir tíu árum síðan hóf Anna Anthony störf hjá Memfis Film, meðal annars sem aðstoðarmaður við upptökur á Breaking the Waves eftir Lars von Trier og sem meðframleiðandi á kvikmyndum Lukas Moodyssons. Hún hitti Josef Fares árið 1999. „Það var Lukas sem benti á hann. Ég hringdi í hann og hann kom og sýndi stuttmyndirnar sínar. Ég var hrifin af þeim. Það gerðist mikið í þeim, þær voru tæknilega góðar og mjög skemmtilegar." Anna Anthony og Memfis Film ákvaðu að styrkja kvikmyndina Svala stráka með tækjabúnaði og fjármunum. Síðan þá hefur Anna framleitt Jalla! Jalla! og Kopps eftir Josef Fares og nú síðast Zozo. Dómnefndarfulltrúar Bo Green Jensen, Anne Jerslev, Danmörku. Antti Selkokari, Kati Sinisalo, Finnlandi. Hrönn Kristinsdóttir, Sigurjón B. Sigurðsson Íslandi. Anne Hoff, Øyvor Dalan Vik, Noregi. Malena Janson, Fredrik Sahlin, Svíþjóð. Varamenn: Morten Piil, Danmörku, Markus Määttänen,Finnlandi,Sif Gunnarsdóttir Íslandi, Ola Lund Renolen, Noregi, Tony Forsberg,Svíþjóð. Samkvæmt reglunum skiptast Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs jafnt á milli leikstjóra, handritshöfundar og framleiðanda. Nánar um Zozo: http://193.10.144.144/film_detail.cfm?PK_Film_ID=175 Nánari upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs http://www.norden.org/nr/pris/film/2006/is/pristagare.asp
Lífið Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira