Hótar Íslendingum ófarnaði 19. október 2006 18:30
Sjávarútvegsráðherra Bretlands segir að Íslendingum muni hefnast fyrir að hefja hvalveiðar og spáir því að Bretar muni sniðganga íslenskar vörur og þjónustu. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig lýst yfir vonbrigðum með veiðarnar. Valgerður Sverrisdóttir kveðst litlar áhyggjur hafa af viðbrögðunum. Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands, segir stefnu íslenskra stjórnvalda óskiljanlega og óafsakanlega. Hann segir engin rök að baki ákvörðuninni. Auk þess geti Íslendingar varla fundið markað fyrir hvalkjöt. Spurður að fréttamanni NFS kvaðst hann ekki mundu beita sér fyrir efnahagsþvingunum gegn Íslendingum vegna málsins. Aftur á móti sagði Bradshaw ýmis teikn á lofti um að Bretar, og raunar fólk um allan heim, ætlaði að sniðganga íslenskar vörur og þjónustu. Erlendir fjölmiðlar halda áfram að fjalla um hvalveiðar Íslendinga, til dæmis var Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra í sjónvarpsviðtali hjá BBC í dag. Bandarísk stjórnvöld bættust í morgun í hóp þeirra sem lýstu vonbrigðum með veiðarnar. Tónninn í bréfi Carlos M. Gutierrez, viðskiptaráðherra landsins, er þó mun mildari en hjá breskum ráðamönnum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra kvaðst í morgun í samtali við NFS hafa litlar áhyggjur af viðbrögðunum. Hún benti á að andstaða Breta við hvalveiðarnar væri þekkt og sakaði svo Bandaríkjamenn um tvískinnung því þeir veiddu sjálfir allra þjóða mest af hvölum.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira