Bretar ætla að halda ótrauðir áfram í Írak 23. október 2006 12:15
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fullvissaði Íraka í morgun um að Bretar ætli að halda ótrauðir áfram starfi sínu í Írak. Þeir Tony Blair og Barham Salih, aðstoðarforsætisráðherra Íraka, funduð í morgun um öryggismál í Írak. Skrifstofa forsætisráðherrans í Downings stræti hefur staðfastlega neitað fréttum um að Blair ætlaði að nota fundinn til að krefjast tryggingar fyrir því að Írakar tæku sjálfir við öryggismálum í suðurhluta landsins innan árs. Krafan um að kalla herlið Breta frá Írak hefur orðið háværari undanfarið en um 7000 breskir hermenn eru staðsettir í suðurhluta Írak nærri borginni Basra. Des Browne, varnarmálaráðherra Breta, hefur lýst því yfir að hann vilji að íraskar hersveitir verði tilbúnar til að taka við af herliði Breta innan árs. Sir Richard Dannatt, yfirmaður breska hersins, lýsti því fyrir skömmu yfir að vera bresks herliðs í Suður-Írak drægi úr öryggi á svæðinu og að Bretar ættu að kalla herlið sitt heim fljótlega. Aðstoðarforsætisráðherra Íraka sagði í morgun mikilvægt að Bretar og Bandaríkjamenn sýndu þrautseigju og hlypu ekki burt. Alþjóðasamfélagið gæti ekki skilið Íraka eina eftir til að ráða fram úr því erfiða ástandi sem nú ríki í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fleiri fréttir Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Sjá meira