Þolinmæðin ekki endalaus 25. október 2006 18:01
George Bush Bandaríkjaforseti segir sívaxandi ofbeldi í Írak mikið áhyggjuefni og að þolinmæði Bandaríkjamanna gagnvart íröskum stjórnvöldum sé ekki óþrjótandi. Árangur í Írak er lykilatriði, að mati forsetans, eigi landið ekki að falla í hendur öfgamanna.Ekki þarf að fara mörgum orðum um ástandið í Írak þessa daga. Engum böndum virðist hægt að koma á ofbeldið í landinu heldur fer mannfall í röðum hermanna og óbreyttra borgara stöðugt vaxandi. Aldrei þessu vant viðurkenndi George Bush þetta á sérstökum blaðamannafundi sem hann boðaði til í dag.Í ræðu sinni kvaðst hann uggandi um stöðu mála en hvatti landsmenn um leið til að hrapa ekki að ályktunum um leið og á móti blási. Nauðsynlegt sé að breyta um aðferðir til að mæta síbreytilegri ógn.Markmið Bandaríkjastjórnar eru semsagt óbreytt, að mati forsetans: Að aðstoða ríkisstjórn Íraks við að koma á stöðugleika í landinu og um leið í veg fyrir að það verði að bækistöð öfgamanna alls staðar að í heiminum. En Bandaríkjamenn ætla sér ekki að vera í Írak endalaust. Það kom glögglega fram í máli forsetans.Tæpar tvær vikur eru til bandarísku þingkosninganna og litast ræða Bush í dag litast öðrum þræði af þeirri staðreynd en um leið vill hann fullvissa íraska ráðamenn um að hann sé ekki að missa móðinn. Allt bendir hins vegar til að þolinmæði bandarísks almennings sé þrotin því einungis fimmti hver Bandaríkjamaður hefur ennþá trú á að sigur vinnist í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira