Forsætisráðherra Íraks ekki hafður með í ráðum 25. október 2006 18:05 Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, á blaðamannafundi á Græna svæðinu svokallaða í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. MYND/AP
Bandarískar og íraskar hersveitir gerðu í morgun áhlaup á Sadr-borg, fátækrahverfi í norð-austurhluta Bagdad, höfuðborgar Íraks. Hverfið er höfuðvígi herskáa sjía-klerksins Moqtada al-Sadr. Minnst 4 féllu í átökum og 18 særðust. Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, segist ekkert hafa vitað af árásinni eða gefið leyfi fyrir henni. Hann hafi ekki verið hafður með í ráðum. al-Maliki gagnrýnir George Casey, hershöfðingi í Bandaríkjaher, og Zalmay Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, fyrir það sem fram kom á blaðamannafundi þeirra í Bagdad í gær. Þá sögðu þeir þörf á að setja um tímatöflu hvað varðar baráttuna gegn andspyrnu- og hryðjuverkamönnum í landinu. Forsætisráðherrann segir ríkisstjórn sína lúta vilja fólksins í Írak og enginn hafi rétt á því að setja tímamörk að þeim forspurðum. Þetta kom fram á blaðamannafundi al-Malikis í dag. Hann sagði tal Bandaríkjamanna um tímamörk eigi rætur sínar í baráttuni fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Hann sagðist fullviss um að þetta tal endurspeglaði ekki opinbera stefnu bandaríkjastjórnar.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira