Samkynhneigð pör fá rétt á við gagnkynhneigð í New Jersey 25. október 2006 22:15 New Jersey í dag. MYND/AP
Dómstóll í New Jersey í Bandaríkjunum úrskurðaði í dag að samkynhneigðum pörum yrðu veitt sömu réttindi og giftum, gagnkynhneigðu fólki. Dómstóllinn lætur það svo í hendur löggjafans í ríkinu að ákveða hvort leyfa eigi samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Úrskurður æðsta dómstóls í New Jersey er 90 síður og þar segja dómarar tímana breytta. Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja erfitt að túlka dóminn sem sigur fyrir samkynhneigða sem vilji ganga í hjónaband, eða ósigur. Hjónaband samkynhneigðra er aðeins leyft í Massachusetts. New Jersey er aðeins eitt fimm ríkja í Bandaríkjunum sem banna hjónaband samkynhneigðra með lögum eða með viðauka við grunnlög ríkisins. Löggjafanum í New Jersey er gefinn hálfs árs frestur til að ákveða hvort breyta eigi hjónabandslöggjöf í ríkinu. Mál sem þessi heyra ekki undir alríkisstjórnina heldur hvert ríki fyrir sig. Málið kom fyrir dóm í New Jersey eftir að sjö samkynhneigð pör kærðu á þeim forsendum að það væri brot gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna að banna þeim að ganga í hjónaband. New Jersey leyfði skráða sambúð samkynhneigðra fyrir 2 árum. Það var í júlí sl. sem hæstiréttur Bandaríkjanna í Washington staðfesti bann við hjónabandi samkynhneigðra. Þetta var mikið áfall fyrir þá sem börðust fyrir breytingum og runnu mörg mál út í sandinn. Mál svipuð því sem tekið var fyrir í New Jersey í dag verða bráðlega tekin fyrir í Connecticut, Kaliforníu, Iowa og Maryland.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira