Tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir í garð lögreglu 20. nóvember 2006 16:24 Frá Selfossi. MYND/GVA
Karlmaður var Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hóta tveimur lögreglumönnum að nauðga konum þeirra. Atvikið átti sér stað á lögreglustöðinni á Selfossi í upphafi ársins en þá hafði maðurinn verið handtekinn á heimili sínu og foreldra hans vegna slagsmála og heimilisófriðar þar. Segir í dómnum að maðurinn hafi verið ógnandi og þurfti að handtaka hann til að koma honum út af heimilinu. Þegar átti að taka ákærða úr handjárnum streittist hann á móti af krafti og hótaði um leið að fara heim til lögreglumannanna tveggja og nauðga konum þeirra. Ákærði sagði fyrir dómi að hann hefði ekki meint neitt með þessari hótun sinni en fram kemur í dómnum að maðurinn hafi verið mjög æstur þegar hann lét umrædd orð falla og ekki ástæða til annars fyrir lögreglumennina en að taka þá hótun alvarlega, sérstaklega með tilliti til ástands ákærða. Þar sem ákærði hafði áður gerst brotlegur við lög og í ljósi þess hve alvarlegar hótanir hans voru þótti tveggja mánaða fangelsi hæfileg refsing.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2024 Innlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira