Körfubolti

Paul Pierce brotlenti á fæti Wayne Rooney

Hér má sjá mynd af atvikinu í gærkvöld en ef vel er skoðað sést í höfuðið á Rooney á bak við höfuð Paul Pearce sem liggur á vellinum. Leikarinn geðþekki Jimmy Fallon er við hlið þeirra til vinstri á myndinni og lengst til vinstri er svo dómarinn sem Pierce tók með sér í fallinu
Hér má sjá mynd af atvikinu í gærkvöld en ef vel er skoðað sést í höfuðið á Rooney á bak við höfuð Paul Pearce sem liggur á vellinum. Leikarinn geðþekki Jimmy Fallon er við hlið þeirra til vinstri á myndinni og lengst til vinstri er svo dómarinn sem Pierce tók með sér í fallinu NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Paul Pierce hjá Boston Celtics var nálægt því að komast í heimsfréttirnar í gær þegar hann kastaði sér á eftir bolta inn í áhorfendastæðin á leik New York og Boston í NBA deildinni, en þá lenti hann á ristinni á knattspyrnumanninum Wayne Rooney sem sat ásamt unnustu sinni og horfði á leikinn.

Rooney varð ekki meint af þessari uppákomu og skemmti sér konunglega, en Pierce lenti einmitt á ristinni frægu sem nærri kostaði Rooney þáttöku á HM í knattspyrnu í sumar. Það má því segja að litlu hafi munað að ensk knattspyrnustjarna meiddist af völdum NBA körfuboltastjörnu í leik - en það hefði án efa geta talist furðufrétt ársins úr íþróttaheiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×