Cleveland - Seattle í beinni á Sýn í kvöld 15. desember 2006 16:45 LeBron James sýnir listir sínar fyrir áhorfendur Sýnar í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Leikur Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt eftir miðnætti í kvöld. Cleveland hefur unnið fjóra heimaleiki í röð og tíu af tólf alls, sem er besti árangur í Austurdeildinni. Mikil meiðsli eru í herbúðum Seattle sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á keppnisferðalagi á austurströndinni. Cleveland hefur unnið fjóra af síðustu sex leikjum sínum og liðið vann nauman sigur á Charlotte Bobcats í síðasta leik, þar sem LeBron James náði sér aldrei á strik. Góðu fréttirnar eru þó þær fyrir Cleveland að bakvörðurinn Larry Hughes er nú loksins byrjaður að spila á ný eftir enn ein meiðslin og skoraði 15 stig í sigrinum á Charlotte. Cleveland hefur unnið 13 leiki og tapað 8 það sem af er tímabils. Lið Seattle hefur verið í miklum vandræðum með meiðsli í vetur og bætir það gráu ofan á svart hjá félaginu, þar sem óljóst er hvort félagið verði mikið lengur í borginni eftir að það var selt í hendur fjárfesta í Oklahoma City. Aðalstjarna liðsins, Ray Allen, fór ekki með liðinu í keppnisferðalagið austur að þessu sinni og þar að auki hafa þeir Earl Watson og Danny Fortson átt við meiðsli að stríða. Það mun þó væntanlega mikið mæða á þeim Rashard Lewis og Luke Ridnour á meðan, en þeir eru tvær skærustu stjörnur liðsins á eftir Ray Allen. Seattle hefur unnið 8 leiki og tapað 13 það sem af er vetri.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Stöðvuðu bardaga alblóðugrar Valgerðar Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira