Gaf gult en breytti því í rautt 21. júlí 2007 04:45 Sara Gunnarsdóttir hefur staðið sig vel á mótinu. Fréttablaðið/Daníel
Íslenska 19 ára landsliðið tapaði 1-2 fyrir Danmörku á Kópavogsvelli í gær í öðrum leik sínum á Evrópumótinu. Íslenska liðið fékk á sig mark í upphafi og lok fyrri hálfleiks, missti fyrirliða sinn meidda af velli í lok fyrri hálfleiks og þurfti síðan að spila manni færri síðasta hálftímann. Ungverski dómarinn Katalin Kulcsár stal senunni í leiknum. Hún dæmdi kolrangt víti á íslenska liðið í lok fyrri hálfleiks og rak síðan Rakel Hönnudóttur að því virtist upp úr þurru. Kulcsár er aðeins þremur árum eldri en stelpurnar og langt frá því að ráða við verkefnið. Hún gaf Rakel fyrst gult spjald en eftir að hafa skoðað leikmanninn sem brotið var á gekk hún til íslenska leikmannsins og gaf henni rautt spjald þar sem leikmaðurinn sem hún sparkaði niður var alvarlega meidd. Stelpurnar gáfu danska liðinu hreinlega eitt mark í forgjöf því þær skoruðu sjálfsmark á 2. mínútu. Fyrirliðinn Guðrún Erla Hilmarsdóttir meiddist síðan illa þegar hún átti að hafa brotið á dönsku stelpunni innan vítateigs í lok fyrri hálfleiks. Emma Madsen skoraði úr vítinu með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Fanndís Friðriksdóttir skoraði langþráð íslenskt mark á 52. mínútu þegar lúmskt skot hennar fyrir utan teig smaug framhjá markverði danska liðsins. Eftir að íslenska liðið varð manni færri á 62. mínutu varð lokakaflinn mjög erfiður. Rakel var búin að vera einn besti maður íslenska liðsins. Stelpurnar gáfust þó ekki upp og fengu nokkur ágæt færi til þess að jafna leikinn. Líkt og í fyrri leiknum var gaman að fylgjast með ótrúlegri vinnslu og yfirferð Söru Gunnarsdóttur sem er í afar krefjandi hlutverki í íslenska liðinu. Baráttan er til fyrirmyndar hjá liðinu en uppskeran ekki í samhengi við hana. Íslenska liðið verður í neðsta sæti hvernig sem fer í lokaleiknum en þar mæta stelpurnar Þjóðverjum sem tryggðu sér sigur í riðlinum með 2-0 sigri á Noregi. Það var ljóst að það þurfti allt að falla með liðinu ætluðu þær sér að ná eitthvað út úr sínum leikjum á þessu sterka móti og sú hefur svo sannarlega ekki verið raunin. Úrslit fyrsta leiksins gáfu ekki rétta mynd af leiknum og með eðlilegri dómgæslu áttu íslenska liðið að fá miklu meira út úr leiknum í gær.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira