Stærsta verkefni Hómers Simpson 26. júlí 2007 01:45 Hómer Simpson býr sig undir átökin í kvikmyndinni um Simpson-fjölskylduna.
Simpson-fjölskyldan mætir í íslensk kvikmyndahús á morgun. Sú heimsókn á eflaust eftir að gleðja marga Íslendinga enda hafa þau Hómer, Marge, Bart, Lísa og Maggie verið heimilisvinir okkar síðustu 18 árin. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Matt Groening var beðinn um að redda nokkrum 30 sekúndna teiknimyndum til að fylla upp í göt í skemmtiþætti Tracy Ullman á Fox-sjónvarpsstöðinni í lok níunda áratugarins. Síðan þá hafa verið framleiddir 400 margverðlaunaðir Simpson-þættir og er þáttaröðin orðin sú langlífasta í sögu bandarísks sjónvarps. Aðdáendur Simpson-fjölskyldunnar hafa lengi beðið eftir að gerð yrði kvikmynd um aðalsöguhetjurnar og nú er biðin á enda. Simpson-kvikmyndin verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum á morgun, bæði með íslensku og ensku tali. Æstur Springfield-lýður Homer berst fyrir því að bjarga bænum sínum. Það reynist ekki alltaf þakklátt starf. Söguþráður Simpsons-myndarinnar er á þá leið að Hómer verður að bjarga Springfield og heiminum öllum frá vandræðum sem hann skapaði auðvitað sjálfur. Inn í vandræðin blandast Arnold Schwarzenegger sem orðinn er forseti Bandaríkjanna. Eftir því sem málin flækjast þarf Hómer að takast á við næstum óvinnandi vígi; að fá Marge til að fyrirgefa sér allar misgjörðirnar, sameina sundraða fjölskylduna að nýju en um leið að bjarga ástkærum heimabænum, Springfield, frá glötun. Mikil vinna var lögð í handrit myndarinnar og voru fengnir til verksins allir bestu handritshöfundar sem hafa skrifað Simpson-þætti í gegnum árin. Þar á meðal James L. Brooks sem var einn af fyrstu handritshöfundunum en hefur haldið sig til baka hin seinni ár. Sömu raddir gefa persónunum líf og í þáttunum, aðalhlutverkin eru í höndum Dan Castellaneta, Julie Kavner, Nancy Cartwright, Yeardley Smith, Hank Azaria, Harry Shearer, Pamela Hayden og Tress MacNeille. Auk þeirra talar Albert Brooks í myndinni. Simpson-kvikmyndin verður frumsýnd á morgun í átta kvikmyndahúsum, bæði með íslensku og ensku tali eins og áður segir.
Mest lesið Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Lífið Fela einhverfu til að passa inn Lífið Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Lífið samstarf Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Menning Fleiri fréttir Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira