Danska fréttastöðin TV2 í miklum vanda 14. janúar 2007 17:05
Hin nýja danska sjónvarpsfréttastöð TV2 er í vanda eftir að hún hefur verið sökuð um að lofa auglýsendum að þeir gætu haft áhrif á fréttaflutning stöðvarinnar. Það er brot á dönskum lögum um útvarps- og sjónvarpsrekstur, svo ekki sé minnst á traust áhorfenda. TV2 fór í loftið rétt fyrir hátíðarnar, og áhorfstölurnar hafa ekki verið glæsilegar. Vart er við því að búast að þær hækki mikið eftir viðtal sem Extra blaðið birti í dag við forstjóra eins af fyrirtækjunum sem lögðu fé í stofnun stöðvarinnar. Stöðin fór þá leið að fá stórfyrirtæki til þess að leggja fram fé. Meðal þeirra er fyrirtækið Siemens Hvidevarer sem lagði fram um fimmtíu milljónir íslenskra króna. Forstjóri þess dregur ekki dul á það í samtali við Extra blaðið að hann búist við meira en venjulegri umfjöllun um fyrirtækið og vörur þess. Hann segir að þeir geti valsað inn á fréttastofuna með fréttatilkynningar sínar og sagt; "Hey, við erum með samning, kíkið þið aðeins á þetta." Peter Mikael Jensen, framkvæmdastjóri TV2 viðurkennir að eitthvað hafi farið úrskeiðis í tjáskiptum við hina nýju eigendur. Þeim verði alls ekki hyglað með þeim hætti sem forstjórinn talar um.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira