Körfubolti

New Jersey - Orlando í beinni í nótt

Dwight Howard er magnaður leikmaður
Dwight Howard er magnaður leikmaður NordicPhotos/GettyImages
Leikur New Jersey Nets og Orlando Magic verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Hér eru á ferðinni tvö af bestu liðum Austurdeildar og er áhorfendum gefst þarna færi á að sjá einn efnilegasta miðherja deildarinnar Dwight Howard hjá Orlando.

 

Annað kvöld gefst svo áskrifendum NBA TV færi á að sjá annað af tveimur heitustu liðum deildarinnar þegar hið magnaða lið Phoenix Suns tekur á móti Minnesota.

Phoenix hefur unnið 12 leiki í röð og tekur þarna á móti Kevin Garnett og félögum í Minnesota sem hafa aðeins rétt úr kútnum undanfarið eftir rólega byrjun í vetur. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti, en við minnum á að hægt er að sjá leikjadagskrána á NBA TV á hægri spássíu á körfuboltasíðunni hér á Vísi. 
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×