Barðist í hálftíma við kyrkislöngu um dóttursoninn 9. febrúar 2007 14:37 Fimm metra kyrkislangan liggur dauð, í gilinu. MYND/AP
Sextíu og sex ára gamall brasiliskur maður barðist í rúma hálfa klukkustund við fimm metra langa kyrkislöngu sem hafði vafið sig utan um átta ára gamlan dótturson hans. Drengurinn var að leika sér í gili, rétt hjá búgarði afans, sem er í Cosorama héraði um 500 kílómetra vestan við Sao Paulo. Joaquim Pereira var að aka heim að búgarðinum, þegar hann heyrði ópin í barnabarninu. Hann stökk þegar út úr jeppanum og niður í gildið. Þar blasti við honum skelfileg sjón. Stór kyrkislangan hafði vafið sig utan um drenginn og var að kremja hann til dauða. Kyrkislöngur eru ekki eitraðar. Þær drepa bráð sína með því að kremja úr henni líftóruna og gleypa hana svo í heilu lagi. Þær eru ótrúlega teygjanlegar og geta gleypt geitur í heilu lagi og liggja svo á meltunni í einhverjar vikur. Kyrkislangan sem réðst á Matteus litla Pereira hefði auðveldlega getað torgað honum. Joaquim var þó ekki á því að sjá af dóttursyni sínum og réðst á slönguna með grjót og veiðihníf að vopna. Slangan barðist um hart og vildi ekki sleppa takinu á drengnum, þess í stað reyndi hún að vefja sig utan um afann líka. Þessi bardagi stóð í um hálfa klukkustund, en þá tókst Joaquim loks að koma á hana banahöggi.
Erlent Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira