„Skorið niður til þess eins að skera niður“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. október 2026 20:48 Líf Magneudóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúar Vinstrisins, Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, gagnrýna öll vinnubrögð meirihlutans í borginni. Samsett Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna harðlega hagræðingaraðgerðir og uppsagnir meirihlutans. Þeir saka meirihlutann um vanþekkingu, óvönduð vinnubrögð, skort á pólitískri forystu og að blekkja borgarbúa. Niðurskurður meirihlutans í borginni sé til þess eins að haka við verkefni á verkefnalista.
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. Greint var frá því í morgun að boðaður hefði verið borgarstjórnarfundur til að ræða hagræðingu. Sjá einnig: Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi „Í fjölmiðlum hafa þessir sömu fulltrúar [meirihlutaflokkanna] með ummælum sínum litað líf starfsfólks og borgarbúa óvissu og óöryggi og sýnt störfum fólks í opinberri þjónustu skeytingarleysi,“ skrifa Líf Magneudóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúar Vinstrisins í skoðanagrein sem birtist á Vísi nú fyrr í kvöld. Forsvarsfólk meirihlutans hafi reitt til höggs á ný í dag á „leynifundi“ þar sem lögð hafi verið fram tillaga Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að ráðast í „flatan niðurskurð“, útfærðan með uppsögnum starfsfólks. Í tillögum meirihlutans birtist „óbærilegt þekkingarleysi“ á þeirri vinnu sem starfsfólk innir af hendi og hver áhrif verkefnanna sem það sinnir hefur. Þessi vanþekking leiðir af sér óvönduð vinnubrögð sem valda beinum skaða Sem dæmi hafi þeir sagt upp ómissandi starfsfólki og ekki áttað sig á því að það þurfi að ráða það aftur. „Yfirsjón og mistök af þessu tagi segja okkur að þessi stjórnarmeirihluti vandar ekki til verka og að verkstjórnina skortir alla pólitíska forystu.“ Meirihlutinn setji á svið leikrit og blekki borgarbúa Borgarbúum sé talin trú um að þar séu á ferðinni flokkar sem ætli að taka til í rekstri borgarinnar og auka þjónustu, „en í sömu andrá munda þeir niðurskurðarhnífinn.“ Í Reykjavík sé nú skorið niður til þess eins að skera niður „og haka eitthvert markmið á verkefnalista“. Með því sé verið að setja á svið leikrit og blekkja borgarbúa. Sjá einnig: „Fyrst og fremst erfitt“ Þær telja líklegt að meiri niðurskurður og fleiri uppsagnir séu í vændum í skipulagsbreytingum meirihlutans þrátt fyrir fyrirheit um að þessi í dag hafi verið síðasti liður áætlana. Sömuleiðis saka þær forystufólk meirihlutans í borginni um að nenna ekki að bera þá pólitísku ábyrgð að vera í forvarnarstarfi fyrir samfélag sem krefjist auðmýktar og skilnings. „Þeir hafa snúið öllu á hvolf í umræðunni og þykjast boða stórsókn í hinum ýmsu málum á meðan þeir skera niður að illa athuguðu máli í gangverki borgarinnar.“ Meirihlutinn líti á Reykjavík sem rekstrareiningu og hagfræðilegt viðfangsefni þar sem opinber þjónusta og samfélagsleg ábyrgð séu látin víkja. Þegar niðurskurður sé kynntur sem óhjákvæmileg nauðsyn sé aðeins rætt um hvað eigi að skera niður, ekki hvers konar borg eigi að byggja. Það sé grundvallarmunur á því að glíma við fjárhagskreggi og að gera niðurskurð að pólitísku markmiði. Niðurskurður er ekki náttúrulögmál. Hann er pólitískt val „Borgin verður ekki aðeins metin í krónum og aurum, heldur líka í þeirri þjónustu sem hún veitir, þeim störfum sem þar eru unnin og þeim lífsgæðum sem hún skapar,“ skrifa Sanna og Líf. „Groddaralegt“ Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir sjálfsagt og nauðsynlegt að hagræða í árferði hárrar verðbólgu og vaxta sem hafi áhrif á hið opinbera jafnt og heimilin og fyrirtækin. Það sé hins vegar óvarlega gert að segja upp 130 störfum í því árferði. „Mér finnst þetta óvarlega gert, 130 störf í því árferði sem við erum í. Mér finnst þetta ekki bara óþarfi. Mér finnst það líka groddaralegt. Það er fullt af fólki núna sem lendir á atvinnuleysisbótum eða missir vinnuna þegar hefur ekki verið eins erfitt að fá vinnu í langan tíma.“ Pétur Marteinsson ræddi uppsagnirnar og aðrar hagræðingaraðgerðir meirihlutans í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Ekki sé satt að núverandi meirihluti hafi tekið við slæmu búi. Skuldirnar séu vissulega miklar en ekki meiri á hvern einstakling en fyrir tíu árum. „Við erum eina sveitarfélagið á landinu, á höfuðborgarsvæðinu, sem getur staðið við skuldbindingar, staðið við lánin okkar á hverju ári. Reykjavíkurborg á pening. Hún er ekki á hausnum. Hún er að skila góðum grunnrekstri.“ Skuldir hafi aukist í hlutfalli við tekjur. „Það er kannski það stærsta og ástæðan fyrir því að lokaniðurstaða í bókhaldi okkar er í mínus eins og staðan er í dag, það er út af vöxtum og verðbótum. En reksturinn sjálfur er að skila peningum.“ Illa sé talað um millistjórnendur Aðspurður hvort það sé eðlilegt að margir stjórnendur, millistjórnendur og sérfræðingar séu í kringum grunnþjónustuna segir Pétur að í öllum rekstri þurfi vissulega að velta steinum og fylgjast með málunum. Illa sé vegið að millistjórnendum sem séu mikilvægt starfsfólk. „Mér finnst hins vegar dálítið illa talað um millistjórnendur. Það er eins og millistjórnendur sitji bara á bak við tölvu og séu bara að ydda einhverja blýanta, sko. Þetta er bara mjög mikilvægt starfsfólk,“ sagði Pétur. „Hraðinn og asinn eru svo mikil við að segja upp svo mörgu fólki að það slæðist með fólk sem er jafnvel tekjuberandi, sem er að búa til tekjur fyrir Reykjavíkurborg eða hagræða fyrir Reykjavíkurborg.“ Þungur fundur Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, segir alla hafa verið uggandi í einhvern tíma að bíða eftir þessum síðustu uppsögnum. „Þau sögðu snemma að þau ætluðu að fara í hagræðingu á öllum sviðum og mér skilst að þetta sé lokapakkinn hvað uppsagnir varðar og ég bara innilega vona það,“ sagði Silja Sóley fyrr í dag. Tómas Arnar Þorláksson ræddi við Silju Sóleyju Birgisdóttur og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur í Ráðhúsinu fyrr í dag. Horfa má á viðtölin í spilaranum að neðan. Hún segir fundinn hafa verið þungan og að hana gruni að uppsagnir muni bitna á þjónustu við borgarbúa en óvenjulegt sé hversu óljósar tillögurnar hafi verið. Nauðsynlegt sé að fá upplýsingar um uppsagnir til að fá skýra mynd af því hvaða áhrif uppsagnirnar muni hafa á störf borgarinnar. Sjá einnig: „Galin vinnubrögð“ „Við fengum enga vitneskju um hvaða störf þetta eru, þannig við vitum ekki enn þá hvaða verkefni liggja þar undir, hvaða verkefni færast til inni í kerfinu og hvaða verkefnum verður alveg fallið frá. En það gefur auga leið að það verður einhvers konar áherslubreyting við svona margar uppsagnir,“ sagði Silja Sóley. Miklu meiri hagræðingartækifæri séu til dæmis í innkaupum borgarinnar og hefði Silja viljað sjá þau raungerast á undan uppsögnum. Kæmi til fleiri uppsagna teldi hún það afar óábyrgt af meirihlutanum.
Reykjavík Reykjavík síðdegis Bylgjan Samfylkingin Vinstrið Sósíalistaflokkurinn Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sjá meira