Serbar ekki sekir 26. febrúar 2007 18:45
Serbneska ríkið ber ekki beina ábyrgð á þjóðarmorðum í Bosníustríðinu. Þetta er niðurstaða Alþjóðadómstóls Sameinuðu þjóðanna sem þó úrskurðaði að Serbía hefði brugðist skyldum sínum, samkvæmt alþjóðalögum, með því að koma ekki í veg fyrir þjóðarmorðin í Srebrenica fyrir tæpum 12 árum. Í júlí 1995 voru um 8.000 bosnískir múslimar myrtir í Srebrenica. Hundrað þúsund manns féllu í átökum Bosníustríðsins frá 1992 til 1995. Dómurinn í dag er sögulegur því ekki hefur fyrr verið úrskurðað um ábyrgð ríkis á þjóðarmorðum. Samkvæmt honum bar serbneska ríkið ekki beina ábyrgð á þjóðarmorðum í stríðinu. Ráðamönnum hafi þó mátt vera ljós hættan í Srebrenica en ekki gripið til aðgerða. Þar með hafi þeir brotið gegn alþjóðlegum skuldbindingum. Dómurinn hafnaði bótakröfu Bosníumanna. Krafist var framsals Bosníu-Serbanna Ratkos Mladic og Radovans Karadic sem eru eftirlýstir fyrir stríðsglæpi. Serbar segja úrskurðinn í dag byggja á staðreyndum málsins en Boris Tadic, forseti Serbíu, hvetur þing landsins til að fordæma morðin í Srebrenica. Ættingjar fórnarlambanna eru æfir vegna dómsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira