Átta ára og tæp 100 kíló 27. febrúar 2007 19:15
Bresk yfirvöld íhuguðu það að taka átta ára dreng frá móður sinni og setja í öryggisgæslu vegna offitu. Drengurinn er rétt tæp 100 kíló, rúmlega þrefalt þyngri en jafnaldrar hans. Við tveggja og hálfs ára aldur var Connor McCreaddie orðinn það þungur að móðir hans átti í erfiðleikum með að lyfta honum. Þegar hann var 5 ára vó hann 57 kíló. Hann er nú rétt tæp 100 kíló og aðeins 1,52 m á hæð. Connor býr með móður sinni og systur. Hann á í erfiðleikum með að klæða sig og þvo. Hann er heilsuveill og missir því oft úr skóla. Hann er ítrekað skotmark hrekkjusvína á skólalóðinni. Móðir Connors, Nicola McKeown, segir hann alltaf svangan. Hún hafi ítrekað reynt að fá hjálp við að grenna hann. Hann sé hins vegar alltaf í eldhúsinu í leit að mat. Hann fari aftur og aftur í ísskápinn. Hann kíki inn í hann og skelli svo aftur hurðinni. Hún sé alltaf að banna honum að ná sér í mat í ísskápinn - hann eigi að bíða fram að matmálstíma. Raunin sé hins vegar sú að hann hafi fæðst svangur. Hann hafi alltaf verið mikið svangur. Connor segir beikon það besta sem hann fái en kjúklingur, steik og pylsur séu ekki langt undan. Bresk barnaverndaryfirvöld segja mælinn nú fullan. Móðir Connors hafi ekki tekist að hjálpa syni sínum og þetta sé dæmi um illa meðferð á börnum. Nú þurfi að athuga hvort það eigi að taka hann frá móður sinni og setja hann í verndargæslu. Í kvöld var síðan ákveðið að leyfa drengnum að vera áfram hjá móður sinni. Sérfræðingar segja mikla hættu á að Connor verði kominn með sykursýki við upphaf unglingsáranna verði ekkert að gert. Auk þess gæti hann þurft að berjast við taugakvilla og hjarta- og æðasjúkdóma strax um tvítugt.
Erlent Fréttir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira