2.200 prósenta verðbólga í Zimbabve 27. apríl 2007 10:01 Robert Mugabe, forseti Zimbabve.
Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabve jókst um 500 prósent á milli mánaða og mældist 2.200 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur aldrei nokkru sinni í sögu nokkurs lands mælst hærri. Ríkisstjórn landsins vann að því í lengstu lög að fresta birtingu verðbólgutalna mánaðarins á meðan landsmenn fögnuðu 27 ára sjálfstæðisafmæli. Efnahagur Afríkuríkisins hefur verið í molum í talsverðan tíma og fer hríðversnandi. Um 80 prósent landsmanna lifa undir fátæktarmörkum og eyða þeir öllum þeim fjármunum sem þeir fá í hendur eins fljótt og auðið er til að varna því að peningarnir brenna upp í verðbólgunni, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Verðbólgutölurnar nú eru 200 prósentum meiri en gert hafði verið ráð fyrir áður en tölurnar voru birtar. Svo slæmt er ástandið að sjálfur Gideon Gono, seðlabankastjóri Afríkuríkisins, hefur sagt að landið þjáist af efnahagslegu alnæmi, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Gert er ráð fyrir að staða efnahagsmála eigi eftir að hríðversna á árinu og reiknað með að verðbólgan fari í 5.000 prósent fyrir lok þessa árs bregðist Robert Mugabe, forseti landsins, ekki við, að sögn BBC.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira