Stjórnarkreppa leyst með samkomulagi í Úkraínu 27. maí 2007 09:24 Forseti Úkraínu kallaði á liðstyrk hersins en hefur nú samið um málamiðlun í deilunni við forsætisráðherrann.
Forseti og forsætisráðherra Úkraínu sömdu í morgunsárið um að þingkosningar verði haldnar í landinu 30. september. Þar með leystu þeir stjórnarkreppu sem komin var á alvarlegt stig."Við munum gera allt sem við getum til að svona lagað endurtaki sig ekki," sagði Viktor Janúkovits forsætisráðherra eftir 12 klukkustunda maraþonfund með forsetanum, Viktor Jústsénko.Litlu munaði að til átaka kæmi fyrir helgi þegar upp úr sauð. Forsetinn skipaði 3.500 manna herliði að halda inn í Kænugarð, höfuðborg landsins, en sveitir hliðhollar forsætisráðherranum vörðu þeim veginn inn í borgina.Þegar allt stefndi í óefni settust stjórnarleiðtogarnir á rökstóla með nokkrum lykilmönnum á úkraínska þinginu. Nú í morgun komu þeir fram og skrifuðu undir samkomulag, sem þeir sögðu að væri málamiðlun í deilunni.Jústsénko varð forseti í appelsínugulu byltingunni, svokölluðu, í Úkraínu í janúar 2005 en neyddist til að skipa Janúkóvits forsætisráðherra eftir að slæmt gengi bandamanna sinna í þingkosningum í mars 2006. Forsetinn vill auka verulega samskiptin við ríki Vestur-Evrópu en forsætisráðherrann er talinn hliðhollur stjórn Pútins í Rússlandi.
Erlent Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira