Bandaríkin vilja herða refsiaðgerðir gegn Súdan Jónas Haraldsson skrifar 29. maí 2007 06:58 MYND/AP
Bandaríkjamenn ætla að herða refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Súdan vegna ástandsins í Darfúr-héraði landsins. Bandaríkin munu líka berjast fyrir harðari aðgerðum gegn súdönskum stjórnvöldum í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Aðgerðirnar eiga að beinast sérstaklega gegn forseta landsins, Omar al- Bashir. George Bush, forseti Bandaríkjanna, mun flytja tilkynningu þessa efnis á hádegi í dag. Nýju refsiaðgerðirnar felast í því að banna enn fleiri fyrirtækjum í olíubransanum að eiga viðskipti við og í Súdan. Einnig á að herða aðgerðir gegn grunuðum stríðsglæpamönnum. Þá á að herða þær refsiaðgerðir sem þegar eru í gildi og reyna að banna vopnusölu til stjórnvalda í Súdan. Forseti landsins neitar því að um alvarlegt ástand sé að ræða og segir alþjóðasamfélagið vera að gera úlfalda úr mýflugu. Fleiri en tvær milljónir manna hafa flúið heimili sín vegna ástandsins í Darfúr héraði Súdan. Þá er talið að rúmlega 200 þúsund hafi verið drepin í átökunum, sem hafa staðið yfir síðastliðin fjögur ár.
Erlent Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira