Vísindahvalveiðar lítillækka Japani Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 29. maí 2007 12:05
Ástralir segja hvalveiðar Japana í vísindaskyni gera lítið úr vísindum. Á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Alaska, sem hófst í gær, sögðu þeir að Japanir notuðu útskýringuna einungis til að komast hjá hvalveiðibanninu. Veiðarnar lítillækki bæði Japani og Hvalveiðiráðið. Nýsjálendingar tóku í sama streng og Ástralir og sögðu enga hagnast á vísindahvalveiðum. Þeir hvöttu Japani til að hætta við áform um að veiða fimmtíu Hnúfubaka á næstu vertíð. Japanir segjast tilbúnir til að komast að samkomulagi um fjölda þeirra. Vísindaveiðum japana hefur verið harðlega mótmælt, en þeir veiða eitt þúsund hvali á ári í vísindaskyni en selja síðan kjötið. Fjöldi mótmælenda er samankominn í Anchorage til að fylgjast með framvindu á ráðstefnunni. Sérstaklega er fylgst með setningu kvóta á hvalveiðum innfæddra í Alaska. Gert er ráð fyrir að á fundinum ljúki með staðfestingu á hvalveiðibanninu sem verið hefur í gildi í 21 ár, þrátt fyrir táknræna samþykkt á síðasta fundi um að aflétta banninu. Til að fella það þyrfti 75 prósent atkvæða. Það hafðist ekki í fyrra. Þjóðum sem eru mótfallnar hvalveiðum hefur hins vegar fjölgað í ráðinu síðan þá. Íslendingar, Japanir og Norðmenn halda því fram að bannið sé óþarft nú þar sem tegundir hafi fjölgað sér. Ísland og Noregur virða bannið að vettugi.
Erlent Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira