Átökin í Líbanon: Hræðilegt ástand í flóttamannabúðum Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 1. júní 2007 10:57 Mikla reykbólstra lagði upp frá flóttamannabúðunum. MYND/AFP
Mannúðarsamtök segja ástandið í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Líbanon vera hræðilegt. Ekkert lát er á átökum meðlima hryðjuverkasamtakanna Fatah al-Islam og líbanskra hermanna sem staðið hafa í 13 daga. Sameinuðu þjóðirnar segja 31 þúsund manns vera innilokaða í búðunum, en 25 þúsund hafi flúið. Mannúðarsamtök segja ástandið hræðilegt. Um 80 manns hafa látið lífið í átökunum. Líbanskir hermenn beittu fyrir sig miklu stórskotaliði þegar þeir réðust á víghreiður samtakanna í búðunum í dag. Þetta er mesta stórskotaárás sem gerð hefur verið í bardögunum sem nú hafa staðið í þrettán daga. Fallbyssusprengjur og vélbyssuskot heyrðust þar sem skriðdrekar söfnuðust saman fyrir utan Nahr al-Bared búðirnar. Þykkan reyk lagði frá búðunum sem eru í norðurhluta Líbanon. Líbanskur hermaður og í það minnsta átta herskáir vígamenn hafa látið lífið í átökunum í dag. Stjórnvöld í Líbanon segja að Fatah al-Islam séu á mála hjá Sýrlendingum, sem hafa neitað því. Það er hernum fjötur um fót að enn er í gildi samningur sem var gerður árið 1969 þar sem hernum er bannað að fara inn í flóttamannabúðir Palestínumanna í landinu. Þar eru um 400 þúsund flóttamenn í tólf búðum.
Erlent Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira