Venesúelska sjónvarpsstöðin sendir út á YouTube Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 1. júní 2007 13:35 Þúsundir mótmælenda flykktust út á götur Caracas vegna lokunar stöðvarinnnar. MYND/AFP
Stjórnendur venesúelsku sjónvarpsstöðvarinnar RCTV senda nú fréttaþátt sinn "El Observador" út á YouTube. Þannig fundu þeir leið til að koma efni fréttamanna til hluta áhorfenda sinna, þrátt fyrir að hafa misst útsendingarleyfið í landinu. Hugo Chavez forseti neitaði stöðinni um endurnýjun leyfisins sem rann út á sunnudag. Fjöldamótmæli hafa verið haldin á götum Venesúela vegna málsins. Ástæðuna sagði Chavez lögbrot og að stöðin hefði tekið þátt í valdaránstilraun gegn sér. Önnur venesúelsk sjónvarpsstöð, Globovision, hefur fengið hótanir um lokun á svipuðum forsendum frá forsetanum. RCTV sjónvarpsstöðin hafði verið starfrækt í 53 ár. Hún var ein fárra einkarekinna sjónvarpsstöðva sem gagnrýndi forsetann og ríkisstjórnina opinberlega. Ríkisrekin sjónvarpsstöð fékk útsendingarleyfi RCTV. Þátturinn "El Observador" er þriggja tíma langur. Auk þess að vera aðgengilegur á YouTube er hann einnig sýndur á miðnætti á kólumbísku sjónvarpsstöðinni Caracol, sem var í samstarfi við RCTV. Útsending hans þar gæti náð til um 800 þúsund íbúa í Venesúela. Það er þó aðeins brot af þeim áhorfendafjölda sem stöðin hafði.
Erlent Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira