Fyrirséð er að reykingabann á veitingastöðum sem tekur gildi í Hollandi í júlí muni reynst flóknara í framkvæmd þar en annars staðar. Neysla kannabisefna er lögleg í landinu og kaffihús mega selja slík efni. Fjölmörg kaffihús í landinu er helguð kannabisefnum.
„Það sama mun ganga yfir þessi kaffihús og önnur. Þau verða reyklaus", sagði Jan Peter Balkenende forsætisráðherra Hollands.
Það má því gera ráð fyrir að kaffihúsa-landslagið í Hollandi muni breytast hressilega eftir að bannið tekur gildi. Þar líkt og hér á landi mega veitingahúsaeigendur þó skjóta skjólshúsi yfir reykingamenn sína með tjöldum fyrir utan staðina.