Hafsteinn kom fyrstur í mark í Bláalónsþrautinni 10. júní 2007 16:17
Hjólreiðamenn fengu sannkallað draumaveður í dag þegar hin árlega Bláalónsþraut á fjallahjólum fór fram í 11. sinn. Hjóluð var 60 km leið frá Hafnarfirði um Djúpavatnsleið, til Grindavíkur og þaðan í mark í Bláa Lóninu. Smelltu á spila til að sjá skemmtilegt myndbrot sem tekið var í keppninni. Keppt var í mörgum flokkum en það var Hafsteinn Ægir Geirsson úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur sem kom fyrstur allra keppenda í mark á tímanum 1 klst, 46 mínútum og 55 sekúndum. Annar varð Árni Már Jónsson úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur en hann kom í mark tæpum fjórum mínútum á eftir Hafsteini. Bryndís Þorsteinsdóttir varð hlutskörpust í kvennaflokki á tímanum 2 klst, 35 mín og 30 sek - en þess má geta að hún keppti í flokki 15-16 ára. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Bláalónsþrautinni en í dag, en um 160 manns voru skráðir til keppni. Um 120 keppenda hjóluðu 60 km leiðina, en hinir hjóluðu öllu styttri leið sem var um 45 km. Eftir keppnina þáðu keppendur veitingar og afslöppun í Bláa Lóninu og sagði talsmaður Vísis að keppnin hefði heppnast með miklum sóma í ár - enda veðrið frábært.
Innlendar Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira