Slysum á Miklubraut fjölgaði um 45% Aron Örn Þórarinsson skrifar 17. júlí 2007 10:27
Aftanákeyrslum í Reykjavík fjölgaði um 25% árið 2006. Flest tjón verða á Miklubrautinni og fjöldi slasaðra þar aukist um 45%. Og enn einu sinni eru gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar þau tjónamestu. Þetta kemur fram í samantekt Sjóvá Forvarnarhússins fyrir árið 2006. Í Reykjavík var tilkynnt um 9.740 tjón til tryggingarfélaganna árið 2006. Það er 35% aukning frá árinu áður og meiri en á landinu í heild. Í þessum umferðaróhöppum slösuðust 1.234 einstaklingar, sem er einnig 35% aukning frá árinu áður. Flestir slösuðust í aftanákeyrslum eða rúm rúm 41% þeirra sem slösuðust. Í þessum óhöppum skemmdust tæplega 20.000 bílar. Ef sá fjöldi yrði settur í eina bílalest, þá yrði hún um 89km löng, eða frá Reykjavík til Reykholts í Borgarfirði. Tjónum á Miklubrautinni fjölgaði um 11% frá árinu áður og þar slösuðust 139 einstaklingar. Áhyggjuefni þykir að fjölgun slasaðra er um 45% á þessari einu götu. Kostnaður tryggingarfélaganna vegna Miklubrautar voru um 357 milljónir. Önnur tjónamesta gatan er Hringbraut og sú þriðja er Kringlumýrarbraut. Í samantektinni kemur einnig fram að gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar eru efst á lista yfir tjónamestu gatnamótin, en næst á eftir koma gatnamót Hringbrautar og Njarðargötu. Flest tjón og slys gerast eftir hádegi, og er mesta hættan á milli klukkan 16 og 17. Samt sem áður er einnig mikið um tjón á morgnanna, en þá eru slys á fólki minni.
Innlent Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira