Vegið að viðkvæmum stofni górilla 26. júlí 2007 18:11
Fjórar skepnur af hinum fágætu fjallagórillum fundust drepnar í þjóðgarðinum Virunga í Lýðveldinu Kongó á sunnudaginn. Górillurnar eru friðaðar enda í bráðri útrýmingarhættu með stofn sem telur um 700 skepnur. Um er að ræða eitt karldýr, eða silfurbak, og þrjú kvendýr. Ekki er vitað hverjir voru að verki eða hvað þeim gekk til en yfirvöld Virunga rannsaka málið. Grunur beinist að skæruliðum Kongósku byltingarhreyfingarinnar sem hafa unnið óbætanlegt tjón á lífríki frumskóga Kongó. Fyrr á þessu ári voru þrjár górillur feldar af meðlimum Kongósku byltingarhreyfingarinnar. „Að sjö skepnur hafi verið feldar á sjö mánuðum er hræðileg staðreynd og getur ekki viðgengist", segir í fréttatilkynningu frá Alþjóðanáttúruverndarsjóðinum (WWF). Verið er að herða til muna eftirlit á griðasvæðum viðkvæms dýraríkis Kongó og kemur her landsins að verkinu. Virunga-þjóðgarðurinn er einn af síðustu stöðum þar sem fjallagórillur lifa. Þar er að finna um 250 fjallagórillur af þeim 700 sem eftir eru í heiminum. Þjóðgarðurinn er elsti þjóðgarður Afríku. Hann var vinsæll áfangastaður ferðamanna áður en stríð braust út í Kongó árið 1998.
Vísindi Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira