Kauphallarfulltrúar ræða málin 13. ágúst 2007 09:45 Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq-hlutabréfamarkaðarins. Hann hvetur hluthafa í OMX-samstæðunni til að halda að sér höndum. Mynd/AFP
Fulltrúar norrænu kauphallarsamstæðunnar OMX og kauphallarinnar í Dubai ætla að funda í dag og ræða um hugsanlegt tilboð hinna síðastnefndu í meirihluta bréfa í OMX. Fréttastofa Associated Press segir geta stefnt í yfirtökubaráttu á milli kauphallarinnar í Dubai og bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq um OMX.Nasdaq lagði fram yfirtökutilboð í OMX-samstæðuna í maí síðastliðnum og hefur stjórn OMX mælt með því.Kauphöllin í Dubai greindi frá því á fimmtudag að hún hefði keypt 4,9 prósenta hlut í OMX-samstæðunni á 230 sænskar krónur á hlut og hefði aukinheldur tryggt sér kauprétt á allt að 27,4 prósentum á sama verði.Heidi Wendt, talsmaður OMX-samstæðunnar, vildi ekki tjá sig um efni fundar forsvarsmannanna í samtali við Associated Press, sem hefur eftir stjórn OMX að ekkert liggi fyrir um næstu skref kauphallarinnar í Dubai þar eð einungis hafi borist yfirtökutilboð frá Nasdaq.Stjórn Nasdaq hefur hins vegar hvatt hluthafa OMX-samstæðunnar til að halda að sér höndum, að sögn Associated Press.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira