Stóðlífsfyrirtæki velta milljörðum Óli Tynes skrifar 20. ágúst 2007 16:27 Það er auðvelt að finna "swingers" klúbba á netinu.
Makaskipti eru orðin milljarða króna iðnaður í Bandaríkjunum. Ekki er óalgengt að þeir sem stunda makaskipti borgi hundruð þúsunda króna á ári fyrir að fá til þess aðstöðu. Hún fæst meðal annars fyrir milligöngu fyrirtækja sem skipuleggja stóðlífsuppákomur á klúbbum og hótelum víðsvegar um landið. Með því að sækja þessar uppákomur getur fólk verið visst um að hitta nýja bólfélaga í tryggu umhverfi. Stærsta stóðlífsfyrirtækið í Bandaríkjunum er Lifestyles Organization, sem nýlega hélt árshátíð sína í Las Vegas. Þangað komu um 900 pör. Fréttamaður Reuters fréttastofunnar fylgdist með samkomunni og sagði að þar hefðu eiginlega verið allir uppá öllum. Fréttamaðurinn talaði meðal annars við hina 48 ára gömlu Terri, sem bað um að eftirnafninu væri sleppt. Hún sagðist hafa verið með þrem karlmönnum síðustu tuttugu og fjórar klukkustundirnar. Með Terri var eiginmaður hennar og jafnaldri, en þau hafa verið gift í 21 ár. Fyrir árshátíðina í Vegas greiddi fólkið 690 dollara skráningargjald til Lifestyles Organization. Forstjóri fyrirtækisins segir að þar af hafi um 200 dollarar farið í kostnað, og hagnaðurinn því um 400 þúsund dollarar. Gestirnir greiða sjálfir fyrir flug sitt og hótelkostnað. Lifestyle Organization veltir um 15 milljónum dollara árlega. Fjöldi umsvifaminni fyrirtækja velta einnig milljónum dollara árlega.
Erlent Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira