Viðskipti innlent

Óbreytt landsframleiðsla innan OECD

Menn að störfum. Landsframleiðsla breyttist lítið á milli ársfjórðunga innan aðildarríkja OECD.
Menn að störfum. Landsframleiðsla breyttist lítið á milli ársfjórðunga innan aðildarríkja OECD. Mynd/AFP

Landsframleiðsla jókst um 0,6 prósent að meðaltali innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt bráðabirgðatölum stofnunarinnar. Þetta er óbreytt niðurstaða frá fjórðungnum á undan.

Mesta aukningin á milli fjórðunga var í Bandaríkjunum og Bretlandi, eða um 0,8 prósent, á tímabilinu en minnst í Japan og Ítalíu.

Þá dróst landsframleiðsla á evrópusvæðinu saman um 0,4 prósentustig og nam 0,3 prósentum.

Sé litið til breytinga á milli ára jókst landsframleiðsla mest í Bretlandi, eða um 3,0 prósent, en minnst í Frakklandi, 1,3 prósent.

Upplýsingar um landsframleiðslu hér á landi liggja ekki fyrir fyrr en í næsta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×