Dýrt að vingsa túttunum Óli Tynes skrifar 24. ágúst 2007 14:40 Bannað að lyfta bolnum.
Abbi-Louise Maple og Rachel Marchant eru báðar 21. árs gamlar. Á sumrin fara þær oft á baðströndina í West Worthing, í Englandi, þar sem þær eiga heima. Þar voru þær staddar fyrr í sumar þegar þær veittu athygli eftirlitsmyndavél sem notuð er til þess að fylgjast með ströndinni. Flissandi biðu þær eftir að vélin beindist að þeim. Þá lyftu þær upp bolunum og vingsuðu herlegheitum sínum. Svo veltust þær um í sandinum, skríkjandi af hlátri. Manninum sem stjórnaði eftirlitsvélinni var hinsvegar ekki skemmt. Satt að segja varð hann svo fúll að hann kærði stúlkurnar fyrir blygðunarbrot. Fyrir slíkt getur maður fengið sex mánaða fangelsi eða sjöhundruð þúsund króna sekt, í Bretlandi. Abbi og Rachel neita sök og benda á að algengt sé að konur sóli sig berar að ofan á ströndinni. Saksóknarinn segir á móti að í aðeins eins kílómetra fjarlægð frá þeim vinkonum sé sérstakur fjölskyldureitur á baðströndinni. Málið stendur nú þannig að það verður réttað yfir stúlkunum. Með lögfræðingum, dómara, kviðdómendum, starfsmönnum dómsins og öllu klabbinu. Það kostar skattborgarana um eina milljón króna á dag. Þær Abbi og Rachel segjast ekki vita hvort þær eigi að hlæja eða gráta.
Erlent Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira