Lykillinn sem hefði getað bjargað Titanic Óli Tynes skrifar 29. ágúst 2007 16:20 Titanic.
Lykill sem hugsanlega hefði getað forðað Titanic frá því að sigla á ísjakann verður seldur á uppboði í Bretlandi í næsta mánuði. Lykillinn gekk að hirslu sem geymdi sjónauka fyrir útsýnistunnu skipsins. Skipverji sem var á útkíkki þegar Titanic sigldi á borgarísjakann sagði fyrir sjórétti að ef þeir hefðu haft sjónauka hefur þeir séð jakann það mikið fyrr að þeir hefðu getað sveigt frá honum. Það var David Blair annar stýrimaður á Titanic sem geymdi lykilinn. Til stóð að hann færi í jómfrúrferðina með skipinu. Á síðustu stundu ákvað útgerðin að senda frekar annan stýrimann, sem hafði meiri reynslu af stórum skipum. Tíminn var þá naumur að Blair varð að pakka í snatri og koma sér í landi. Hann tók ekki eftir því fyrr en Titanic var farið að hann var ennþá með lykilinn í vasanum. En allir vissu að Titanic gat ekki sokkið og enginn bjóst við að það yrðu borgarísjakar á leiðinni. Blair fannst því ekki ástæða til að gera neitt í málinu. Fyrir sjórétti mætti hinsvegar Fred Fleet, sem hafði verið á útkíkki þegar áreksturinn varð. Hann minntist þess að hafa séð David Blair með sjónauka. Hann vissi hinsvegar ekki hvað hefði orðið af honum. Formaður rannsóknarnefndarinnar spurði hann hvort þeir hefðu séð jakann í meiri fjarlægð ef þeir hefðu haft sjónauka. "Við hefðum séð hann aðeins fyrr." "Hversu miklu fyrr ?" "Ja, nóg til þess að geta beygt frá honum."
Erlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Missti hendi í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Sjá meira